Viðskipti
| AFP
| 1.10.2010
| 20:38
Hækkun í Kauphöllinni í New York
Helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu á Wall Street í kvöld eftir lækkun síðustu tvo daga. Dow Jones vísitalan hækkaði um 41,63 stig eða 0,39% og er lokagildi hennar 10.829,68 stig.
Nasdaq hækkaði um 0,09% þrátt fyrir að hlutabréf Hewlett-Packard lækkuðu um 3,14% eftir að tilkynnt var um nýjan forstjóra fyrirtækisins. S&P hækkaði um 0,44%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















