Viðskipti
| AFP
| 5.10.2010
| 7:01
Seðlabanki Ástralíu kemur á óvart
Bankastjórn Seðlabanka Ástralíu kom á óvart í dag með því að tilkynna að stýrivextir yrðu óbreyttir fimmta mánuðinn í röð. Eru vextirnir 4,5% og höfðu flestir gert ráð fyrir því að þeir myndu hækka vegna þess að hagvöxtur er í Ástralíu og þar er lítilsháttar verðbólga.
Ástralski dalurinn lækkaði um meira en 1% í kjölfar fréttanna á meðan hlutabréfamarkaðurinn tók fregnunum vel.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















