Viðskipti
| AFP
| 6.10.2010
| 11:43
Fitch lækkar lánshæfiseinkunn Írlands
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í dag, að það hefði lækkað lánshæfiseinkunn írska ríkisins vegna gríðarlegs kostnaðar, sem fylgdi björgun þarlendra banka. Útlit er fyrir að halli á fjárlögum þessa árs verði 32% af landsframleiðslu.
Fitch lækkaði einkunn fyrir langtímaskuldbindingar úr A+ í AA- með neikvæðum horfum.
Matsfyrirtækið Moody's tilkynnti í síðustu viku, að lánshæfiseinkunn Írlands væri á athugunarlista hjá fyrirtækinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















