Verðhrun á Hollywood eign
Eignin sem um ræðir, 9900 Wilshire Boulevard, var í
eigu félagsins Project Lotus LLC. En það var í eigu CPC Group Limited, sem er fjárfestingafélag
skráð á
Guernsey og er í eigu bræðranna Christian og Nick Candy. Greiddu þeir bræður 500 milljónir Bandaríkjadala, tæpa 56 milljarða króna, fyrir eignina árið 2007, samkvæmt frétt á vef Financial Times í kvöld. Áður átti Kaupþing hlut í eigninni, samkvæmt fyrri fréttum breskra fjölmiðla sem hafa ítrekað fjallað um Hollywood ævintýri Kaupþings.
Í febrúar var eignin yfirtekin af Banco Inbursa, sem er í eigu mexíkóska fjárfestisins Carlos Slim, þar sem CPC tókst ekki að standa í skilum með 356 milljón dala lán hjá bankanum. Á þeim tíma var haft eftir talsmanni Candybræðra að ástæðuna fyrir því að ekkert varð af framkvæmdum megi rekja beint til gjaldþrots Kaupþings í október 2008.
En nú hefur hópur asískra fjárfesta keypt landið á 148,3 milljónir dala í útboði sem Banco Inbursa stóð fyrir.
Til stóð að reisa 235 lúxusíbúðir á svæðinu og byggja þar smásöluverslun og veitingastaði.
Kaupþing hafði lánað Candy-bræðrum 1,2 milljarða dala en um 300 milljónir dala voru nýttar í kaup á snekkjum og flugvélum, samkvæmt frétt Telegraph frá því fyrr á árinu.



















