Viðskipti
| AFP
| 6.10.2010
| 20:36
Yfirtökur og fækkun starfa höfðu áhrif á fjárfesta
Það var ekki sama ánægjan ríkjandi á Wall Street í kvöld og í gær þegar helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu umtalsvert og náðu sínum hæstu gildum í fimm mánuði. Þrátt fyrir að fjárfestar hafi tekið fyrirhuguðum yfirtökum General Electric og Johnson & Johnson á öðrum fyrirtækjum vel þá höfðu fregnir um fækkun stafa líka áhrif.
Dow Jones vísitalan hækkaði um 0,2% og er 10.967,42 stig en S&P 500 lækkaði um 0,82% og Nasdaq lækkaði um 0,80%.
Fyrr í dag voru birtar fréttir um að störfum í einkageiranum hafi fækkað um 39 þúsund á milli ágústmánaðar og september. Er þetta í andstöðu við væntingar markaðarins en flestir höfðu spáð því að störfum myndi fjölga um 18 þúsund á milli mánaða.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















