Viðskipti
| mbl
| 7.10.2010
| 9:01
Áfram afgangur af vöruskiptum
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir september nam vöruútflutningur tæpum 50,8 milljörðum króna og innflutningur 39,6 milljörðum. Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæpa 11,2 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum, sem Hagstofan birti í dag.
Í september í fyrra var 10,8 milljarða króna afgangur af vöruskiptum.
Alls nemur afgangur af vöruskiptum það sem af er árinu 86,7 milljörðum króna samkvæmt þessu. Fyrstu 9 mánuði síðasta árs var vöruskiptajöfnuður hagstæður um 62,9 milljarða króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















