Viðskipti
| AFP
| 8.10.2010
| 21:52
Dow Jones fer yfir 11 þúsund stig
Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,53% í kauphöllinni í New York í kvöld og lokaði í 11.006,43 stigum. Er það hæsta gildi vísitölunnar frá því 3. maí sl. Virðist sem fjárfestar geri ráð fyrir því að nýjar tölur um aukið atvinnuleysi vestanhafs þýði að stjórnvöld muni boða aðgerðir til þess að hleypa lífi í efnahagslífið.
S&P 500 vísitalan hækkaði um 0,61% og Nasdaq um 0,77%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















