12 milljónir í stjórnvaldssekt
Samkeppniseftirlitið hefur gert sátt við eignarhaldsfélagið Ívar ehf. um að félagið greiði 12 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir brot gegn banni samkeppnislaga við því að samruni komi til framkvæmda áður en Samkeppniseftirlitið hafði heimilað hann. Um er að ræða samruna Ívars ehf. og Lýsis hf.
Fram kemur í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu, að í samkeppnislögum sé lagt bann við því að samruni komi til framkvæmda áður en tilkynnt hafi verið um hann til Samkeppniseftirlitsins og ákvörðun eftirlitsins liggi fyrir um hvort samruninn hindri virka samkeppni, nema til komi sérstakt leyfi Samkeppniseftirlitsins. Þessari reglu sé ætlað að tryggja að unnt sé með fullnægjandi hætti að vinna gegn samkeppnishamlandi samrunum. Sé sérstaklega gert ráð fyrir því í samkeppnislögum að lögð séu viðurlög á fyrirtæki sem brjóta gegn þessari reglu.
Samkeppniseftirlitið tilkynnti Ívari það mat sitt, að svo virtist sem brotið hefði verið gegn banni samkeppnislaga við framkvæmd á samruna Ívars og Lýsis. Í framhaldi af því leitaði Ívar til eftirlitsins og óskaði eftir því að sátt yrði gerð í málinu. Segir Samkeppniseftirlitið, að viðræður hafi leitt til þess að sátt var gerð við félagið líkt og stofnuninni sé heimilt samkvæmt samkeppnislögum. Sú heimild sé til þess fallin að stytta rannsókn og málsmeðferð samkeppnisyfirvalda.
Ívar er hluti af fyrirtækjasamstæðu sem á meðal annars Ísfélag Vestmannaeyja og stóran eignarhlut í eignarhaldsfélagi Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins og mbl.is.



















