Viðskipti
| mbl
| 11.10.2010
| 18:15
Setur samruna Arion banka og BM Vallár skilyrði
Samkeppniseftirlitið hefur sett skilyrði fyrir samruna Arion banka og BM Vallár, sem bankinn tók yfir í maí. Hefur náðst sátt um skilyrðin milli stofnunarinnar og bankans og telur Samkeppniseftirlitið að skilyrðin leysi hin samkeppnislegu vandamál sem stafa af samrunanum.
Samkeppniseftirlitið teklur mikilvægt að BM Vallá sé rekið óháð Arion banka eftir því sem kostur er. Í skilyrðum sáttarinnar er Arion banka því gert skylt að koma eignarhlut sínum í BM Vallá fyrir í sérstöku eignarhaldsfélagi í eigu bankans og skal félagið starfa sjálfstætt.
Þá eru sett skilyrði sem tryggja skulu sjálfstæði BM Vallár gagnvart Arion banka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















