Viðskipti
| Morgunblaðið
| 12.10.2010
| 5:30
| Uppfært
5:57
AGS tjáir sig ekki um skuldaniðurfellingu
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vill að svo komnu máli ekki tjá sig um yfirlýsingar íslenskra ráðamanna um að reynt verði að skoða hvort efnhagslegt svigrúm sé til þess að stjórnvöld beiti sér fyrir flatri niðurfellingu á höfuðstól lána.
Talsmaður AGS segir við Morgunblaðið í dag, að meðan ekkert liggi fyrir um útfærslur á slíkri niðurfellingu sé ekkert hægt að segja um áhrif hennar á efnahagssamstarf sjóðsins og íslenskra stjórnvalda.
Sem kunnugt er þá er flöt niðurfelling lána útilokuð í þriðju endurskoðun AGS á efnahagsáætluninni og að sama skapi láta sérfræðingar sjóðsins í ljós áhyggjur sínar af því að stjórnvöld hafi ekki reynt að hafa hemil á væntingum landsmanna um frekari aðgerðir vegna skuldavanda heimila.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















