Eik Fonden skuldar Eik banka stórfé
Eik Fonden, stærsti einstaki hluthafi í færeyska bankanum Eik, skuldar bankanum næstum hálfan milljarð danskra króna, um 10 milljarða íslenskra króna og getur ekki greitt skuldina. Að sögn danska viðskiptablaðsins Børsen var hluti af þessum lánum notaður til að auka eigið fé bankans en það er nú verðlaust.
Odd Bjellvåg, núverandi formaður stjórnar Eikar og Eik Fonden, segir að sjóðurinn skuldi bankanum rúmar 400 milljónir danskra króna og geti ekki greitt þá skuld. Hann segist ekki vita hvort hægt sé að ná samningum um skuldina en eins og staðan sé nú sé sjóðurinn ógjaldfær.
Eik Fonden skuldaði bönkum 27 milljónir danskra króna árið 2005 en skuldin var 412 milljónir danskra króna í lok síðasta árs samkvæmt ársreikningi. Að auki skuldaði sjóðurinn 54 í öðrum stofnunum. Bjellvåg segir, að stærstur hluti þessara skulda sé við Eik banka.
Brian Mikkelsen, efnahagsráðherra Dana, ætlar á morgun að eiga fund með forsvarsmönnum danska fjármálaeftirlitsins og tryggingarsjóðsins Finansiel Stabilitet, sem tók Eik nýlega yfir. Að sögn Børsen gaf Eik Fonden fjármálaeftirlitinu fyrir nokkrum mánuðum yfirlýsingu um, að hann myndi leggja Eik banka til aukið hlutafé ef bankinn lenti í vandræðum. Nú er komið í ljós að sjóðurinn gat ekki staðið við þær skuldbindingar.



















