Viðskipti
| AFP
| 12.10.2010
| 21:54
Hagnaður Intel nærri 3 milljarðar dala
Hagnaður bandaríska örgjörvaframleiðandans Intel nam nærri 3 milljörðum dala á þriðja ársfjórðungi og rekstartekjur námu nærri 11 milljörðum dala og jukust um 18% milli ára.
Hagnaður á hlut var 52 sent en sérfræðingar höfðu spáð 50 senta hagnaði á hlut.
Paul Otellini, forstjóri og stjórnarformaður Intel, segir í tilkynningu að tekjur félagsins hafi aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















