Viðskipti
| mbl
| 14.10.2010
| 20:35
Hagnaður Google eykst um 32%
Hagnaður Google nam 2,17 milljörðum Bandaríkjadala, 240 milljörðum króna, á þriðja ársfjórðungi, og er það auking um 32% á milli ára. Skýrist aukningin einkum af auknum auglýsingatekjum netfyrirtækisins.
Tekjur Google jukust um 23% og námu 7,29 milljörðum dala og er það mun meira heldur en spáð hafði verið. Hækkuðu hlutabréf Google um 40 dali á hlut í dag og fást nú 581,31 dalur fyrir hvern hlut.
Eric Schmidt, forstjóri Google, segir að þriðji ársfjórðungur hafi verið frábær fyrir fyrirtækið. Mikill vöxtur hafi verið í starfsemi fyrirtækisins að undanförnu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















