Viðskipti
| mbl
| 14.10.2010
| 16:10
Yfirtöku lokið á Eik banka
Yfirtaka danska tryggingasjóðsins Finansiel Stabilitet á færeyska bankanum Eik tók gildi í dag. Hefur bankinn nú runnið inn í nýtt dótturfélag Finansiel Stabilitet, sem nefnist Eik Banki Føroya P/F.
Samkomulag var gert 30. september milli Eikar og Finansiel Stabiltet og hefur öllum skilyrðum nú verið fullnægt, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands frá Odd Bjellvåg, stjórnarformanni bankans.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















