Viðskipti
| mbl
| 15.10.2010
| 12:46
| Uppfært
15:54
Rúmlega 2 milljarða velta á fasteignamarkaði
Alls var 72 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 8. október til og með 14. október. Þar af voru 53 samningar um eignir í fjölbýli, 14 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.092 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29,1 milljón króna.
Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Suðurnesjum. Hann var um eign í sérbýli. Upphæð samnings var 11,6 milljónir króna.
Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 122 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,4 milljónir króna.
Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 4 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 115 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23 milljónir króna, samkvæmt frétt á vef Þjóðskrár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















