Samið um eignarhald á Byr
Slitastjórn Byrs sparisjóðs, fjármálaráðuneytið fyrir
hönd ríkissjóðs og Byr hf. hafa náð samkomulagi um uppgjör og eignarhald Byrs
hf. Hlutur
ríkisins í Byr verður 5,2% en 94,8% hlutur verður eign Byrs sparisjóðs en í
vörslu og umsjón fjármálaráðuneytisins, í samstarfi við slitastjórn Byrs
sparisjóðs, þar til slitastjórnin kallar eftir honum, en það er miðað við að
það gerist innan tveggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Kröfu Byrs sparisjóðs á Byr hf. breytt í hlutafé
Með þessu samkomulaginu verður Byr fullfjármagnaður með nýjan stofnefnahagsreikning sem uppfyllir eiginfjár- og lausafjárkvaðir Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands.
Fjármálaráðuneytið mun veita Byr hf. allt að 5 milljarða króna víkjandi lán á markaðskjörum til 10 ára, sem ráðgert er að Byr hf. greiði upp á 5 árum. Kröfu Byrs sparisjóðs á Byr hf. verður breytt í hlutafé í Byr hf. en útgefið hlutafé í Byr hf. verður um 17,2 milljarðar. Samkomulag þetta fer nú til umfjöllunar hjá eftirlitsaðilum.



















