Viðskipti
| AFP
| 18.10.2010
| 21:09
Hækkun á Wall Street
Helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu á Wall Street í dag eftir að bandaríski bankinn Citigroup kynnti góða afkomu á þriðja ársfjórðungi. Eins var afkoma IBM og Apple góð en tilkynningar um uppgjör tölvufyrirtækjanna var kynnt eftir lokun markaða í kvöld.
Dow Jones vísitalan hækkaði um 80,91 stig, eða 0,73% og er 11.143,69 stig. S&P 500 hækkaði um 0,72% og Nasdaq um 0,48%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















