Spá 3% verðbólgu í október
Í heild mun gjaldskrárbreyting Orkuveitu Reykjavíkur leiða til 0,39% hækkunar verðlags. mbl.is/Heiðar Kristjánsson
Samkvæmt bráðabirgðaspá gerir Greiningardeild ráð fyrir 0,75% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) næstu þrjá mánuði (+0,5% í október, + 0,15% í nóvember og +0,1% í desember). Í heild mun gjaldskrárbreyting Orkuveitu Reykjavíkur leiða til 0,39% hækkunar verðlags.
Hækkunin skiptist þó í tvo hluta, þ.e. gjaldskrárbreytingu á heitu vatni og rafmagni.
Að mati Greiningardeildar Arion banka er lítil verðbólga framundan og ekki ólíklegt að verðbólgan verði komin niður í kringum 2% í árslok.
Óvissa í spá okkar snýr einna helst að hrávöruverði, en samkvæmt okkar heimildum eru talsverðar verðhækkanir framundan á ýmsum hrávörum (t.d. eggjum, hveiti, kaffi, pasta, svínakjöti og kjúkling)," segir í markaðspunktum deildarinnar.



















