Ætla að setja reglur um vogunarsjóði
Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkjanna náðu í dag samkomulagi um reglur, sem settar verða um starfsemi vogunarsjóða. Náðist samkomulagið eftir að Bretar og Frakkar jöfnuðu ágreining sinn um málið.
Didier Reynders, fjármálaráðherra Belgíu, sem stýrði fundinum, tilkynnti um samkomulagið í dag. Sagði hann að þetta væri mjög mikilvægur áfangi fyrir leiðtogafund svonefndra G20 ríkja, sem haldinn verður í Suður-Kóreu.
Michel Barnier, sem fer með málefni fjármálamarkaða í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sagði að þetta væri í fyrsta skipti, sem vogunarsjóðir verði settir undir regluverk Evrópusambandsins. Lagði hann áherslu á, að settar yrðu skýrar reglur til að tryggja gegnsæi og koma í veg fyrir mismunun.
Þessi yfirlýsing var túlkuð sem svar við áhyggjum, sem Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefur látið í ljós, af fyrirætlunum um að setja reglur um vogunarsjóði. Frakkar hafa beitt sér fyrir því að þessar reglur verði settar en flestir vogunarsjóðir í Evrópu eru með höfuðstöðvar í Lundúnum.



















