Viðskipti
| AFP
| 19.10.2010
| 20:49
Lækkun á Wall Street
Helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu á Wall Street í dag eftir að kínversk stjórnvöld tilkynntu um hækkun vaxta. Eins virðast fjárfestar ekki ánægðir með frammistöðu Apple og IBM en fyrirtækin kynntu afkomu sína eftir lokun markaða í gær. Þrátt fyrir góða afkomu lækkaði Apple um 2,7% og IBM um 3,4%.
Dow Jones lækkaði um 165,14 stig eða 1,48% og er 10.978,55 stig. S&P 500 lækkaði um 1,59% og Nasdaq um 1,76%.
Stýrivaxtahækkunin í Kína er sú fyrsta í þrjú ár þar í landi og eru vextirnir hækkaðir til þess að stemma stigu við verðbólgu og verðbólu á fasteignamarkaði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















