Olíuverð á niðurleið

Frá NYMEX markaðnum í New York
Frá NYMEX markaðnum í New York Reuters

Verð á hráolíu fór niður fyrir 83 Bandaríkjadali tunnan í rafrænum viðskiptum í Asíu í nótt og morgun þar sem fjárfestar virðast efast um hver staðan er í efnahagsmálum Bandaríkjamanna. Eins hafði hækkun á gengi Bandaríkjdals áhrif en öll hráolíuviðskipti fara fram í Bandaríkjadölum.

Í New York hefur verið á hráolíu til afhendingar í nóvember lækkað um 32 sent og er 82,74 dalir tunnan.

Í Lundúnum hefur verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í desember lækkað um 59 sent og er 83,78 dalir tunnan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK