Eiga von á nýju mati ríkissjóðs
Greining Íslandsbanka á von á því að alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's sendi fljótlega frá sér nýtt lánshæfismat fyrir íslenska ríkið en félagið gaf út nýtt mat á Landsvirkjun í gær.
Það var í mars sem S&P sendi síðast frá sér tilkynningu um stöðu ríkissjóðs en í því tilfelli lækkaði það lánshæfiseinkunnir hans í innlendri mynt um eitt þrep, þ.e. úr BBB+/A-2 í BBB/A-3. Gjaldeyrishöftin voru meginastæða þess að S&P lækkaði einkunnir ríkissjóðs fyrir innlendar skuldbindingar og tók fyrirtækið fram að þau væru engin langtímalausn á veikri lausafjárstöðu Íslands enda myndu þau draga úr sveigjanleika landsins á sviði peninga- og ríkisfjármála og úr fjárfestingamöguleikum ef þau myndu festa sig í sessi til lengri tíma.
Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir erlendar skuldbindingar eru BBB-/A-3. Neikvæðar horfur voru þá sagðar beinast að framvindu Icesave-málsins, afnámi gjaldeyrishafta, aðgengi landsins að erlendri fjármögnun og áhættu af pólitískum toga.
„Lítið hefur þokast í
jákvæða átt hvað þessi mál varðar frá því í mars, þótt benda megi á
jákvæð teikn á borð við nýlega skuldabréfaútgáfu Landsvirkjunar og aukna
áherslu Seðlabankans á að næstu skref í afnámi hafta verði stigin fyrr
en seinna. Jafnframt hefur orðrómur verið uppi um að lausn
Icesave-málsins sé í sjónmáli en þó er nokkuð ljóst að ekkert er fast í
hendi hvað það varðar," segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.



















