Viðskipti
| Morgunblaðið
| 23.10.2010
| 5:30
| Uppfært
7:19
Misvísandi yfirlýsingar og tafir á upplýsingum
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Þórarinn Pétursson aðalhagfræðingur Seðlabankans. mbl.is/Golli
Eru það ekki aðeins misvísandi yfirlýsingar seðlabankastjóra og æðstu yfirmanna bankans, heldur einnig það hve langan tíma tekur að birta ræður seðlabankastjóra á vef Seðlabankans.
Til dæmis flutti Már Guðmundsson seðlabankastjóri ræðu á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva, hinn 24. september en ræðan birtist ekki á vefsíðu Seðlabankans fyrr en hinn 29. sama mánaðar.
Þá var ræða Más, sem hann flutti á fundi íslensk-ameríska verslunarráðsins, birt á vefsíðu bankans tveimur dögum síðar, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















