Viðskipti
| mbl
| 26.10.2010
| 8:49
Hagvöxtur 0,8% í Bretlandi
Breska hagkerfið óx um 0,8% á þriðja ársfjórðungi samanborið við fjórðunginn á undan. Er þetta meiri vöxtur en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir en þeir spáðu 0,4% vexti.
Breska hagstofan segir, að vöxturinn hafi einkum verið í þjónustu, byggingarframkvæmdum og framleiðslu.
A öðrum ársfjórðungi óx breska hagkerfið um 1,2% samanborið við fyrsta ársfjórðung.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















