Viðskipti
| AFP
| 26.10.2010
| 10:43
Horfur í Bretlandi batna
Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur staðfest að Bretland haldi lánshæfiseinkunninni AAA, og breytt spá sinni um þróun úr neikvæðum í stöðugar. S&P tóku boðaðan niðurskurð ríkisstjórnar Íhaldsflokksins og Frjálslyndra demókrata til sem ástæðu breytingarinnar.
"Að okkar mati hafa ákvarðanir bresku samsteypustjórnarinnar, um niðurskurð á fjárlögum, aukið líkurnar á því að samdráttaráætlun ríkisstjórnarinnar frá því í júní standist," segir í tilkynningu frá S&P
"Að sama skapi hafa stjórnvöld sýnt góða samstöðu í þeirri viðleitni sinni að koma opinberum fjármálum Bretlands aftur á réttan kjöl."
"Við höfum því ákveðið að breyta horfum úr neikvæðum í stöðugar. Við staðfestum jafnframt lánshæfismat breska ríkisins í flokknum AAA/A-1+"
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















