Viðskipti
| Morgunblaðið
| 26.10.2010
| 5:30
Skuldir ríkisins aukast um 12%
Á sex mánaða tímabili í ár jukust skuldir ríkissjóðs um tæpa 143 milljarða króna, eða 12,3 prósent.
Í mars á þessu ári námu skuldir ríkissjóðs, samkvæmt tölum Lánasýslu ríkisins, 1.158 milljörðum króna en voru í lok september um 1.301 milljarður, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Innlendar skuldir námu í mars 814 milljörðum, en 922 milljörðum króna í september, en hafa ber í huga að hér eru skuldbindingar ríkissjóðs vegna lífeyrissjóða og aðrar ábyrgðir ekki teknar með. Að stærstum hluta er hér verið að tala um útistandandi ríkisskuldabréf og -víxla, sem og skuldabréf á Seðlabanka Íslands og lán vegna Landsvirkjunar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















