Mikið tap hjá Deutsche Bank
Tap stærsta banka Þýskalands, Deutsche Bank, jókst verulega á þriðja ársfjórðungi líkt og varað hafði verið við í afkomuviðvörun í síðasta mánuði. Nam tap bankans 1,2 milljörðum evra, 188 milljörðum króna.
Er tap Deutsche Bank rakið til Postbank sem Deutsche er stór hluthafi í og er að yfirtaka. Eftir að afkomuviðvörunin var gefin í síðasta mánuði hrundi verð hlutabréfa bankans í Kauphöllinni í Frankfurt um 8% á einungis nokkrum mínútum.
Þrátt fyrir tapið þá er það minna heldur en áætlun sérfræðinga sem Dow Jones fréttaveitan leitaði til en þeirra spá var að meðaltali upp á 1,47 milljarða evra tap á þriðja ársfjórðungi.
Ef afskriftir vegna Postbank eru ekki teknar með nam hagnaður Deutsche Bank 1,1 milljarði evra en það er samt mun minni hagnaður heldur en á þriðja ársfjórðungi í fyrra er hagnaðurinn nam 21% meira eða 1,4 milljörðum evra.



















