Hagnaður Exxon 826 milljarðar króna á þremur mánuðum
Hagnaður bandaríska olíufyrirtækisins ExxonMobil jókst um 55% á þriðja ársfjórðungi frá sama tímabili í fyrra. Nam hagnaðurinn 7,35 milljarðar Bandaríkjadala, 826 milljarðar króna. Á þriðja ársfjórðungi í fyrra nam hagnaður félagsins 4,73 milljörðum dala. Helsta skýringin á auknum hagnaði er hækkun á eldsneytisverði og aukinni olíuframleiðslu í Katar.
Hagnaður á hlut nam 1,44 dölum sem er mun hærra heldur en spár hljóðuðu um en þeirra spár voru að meðaltali 1,39 dalir á hlut í hagnað.
Tekjur ExxonMobil, sem er stærsta olíufélag heims sem ekki er í ríkiseigu, námu 95,29 milljörðum dala sem er 16% aukning á milli ára.
Rekstrarhagnaður ExxonMobil á fyrstu níu mánuðum ársins nam 21,21 milljarði dala sem er 59% aukning frá fyrra ári. Í fyrra nam hagnaður félagsins 40,6 milljörðum dala sem er mesti hagnaður sem skráð fyrirtæki hefur skilað á einu ári.



















