Viðskipti
| AFP
| 28.10.2010
| 21:18
Taugatitringur á markaði
Litlar breytingar urðu á helstu hlutabréfavísitölum vestanhafs í kvöld en talsverð taugaveiklun einkenndi viðskipti dagsins. Við upphaf viðskipta virtist gleði ríkja með nýjar upplýsingar um að dregið hafi úr atvinnuleysisumsóknum í Bandaríkjunum og afkoma skráðra félaga sem er með ágætum á þriðja ársfjórðungi.
Spenna ríkir um nýjar hagtölur sem birtar verða á morgun en vonir standa til að hagvöxtur hafi mælst á þriðja ársfjórðungi.
Dow Jones lækkaði um 12,33 stig eða 0,11% og er
11.113,95 stig. S&P 500 hækkaði hins vegar um 0,11% og Nasdaq hækkaði um 0,16%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















