Viðskipti
| AFP
| 29.10.2010
| 6:27
Hagnaður hjá Sony
Hagnaður af rekstri japanska raftækjaframleiðandans Sony nam 31,1 milljarði jena, 43 milljörðum króna, á þriðja fjórðungi ársins samanborið við 26,3 milljarða jena tap á sama tímabili í fyrra.
Fyrirtækið hækkaði í morgun spá fyrir afkomuna á árinu öllu og reiknar nú með að hagnaðurinn verði 70 milljarðar jena, 10 milljörðum meiri en fyrri spár gerðu ráð fyrir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















