Viðskipti
| AFP
| 3.11.2010
| 15:48
Olíuverð ekki hærra í hálft ár
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað í dag vegna væntinga um að bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna muni kynna aðgerðir til þess að auka hagvöxt í landinu síðar í dag. Hefur olíuverð ekki verið hærra í sex mánuði.
Verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í desember hefur hækkað um 81 sent í Lundúnum í dag og er 86,22 dalir tunnan. Það fór hins vegar hæst í 86,63 dali í dag sem er hæsta verð sem fengist hefur fyrir hráolíu frá 4. maí í vor.
Í New York hefur hráolía til afhendingar í desember hækkað um 78 sent og er 84,68 dalir tunnan en fór hæst í dag í 85,04 dali tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















