Talsverð viðbrögð á markaði
Segir Greining Íslandsbanka hreyfinguna endurspegla á markaðinum væntingar um að lengra sé í afnám hafta en fyrr var vænst og að lækkun stýrivaxtana var nokkuð umfram væntingar á markaði.
Strax við opnun markaðar skapaðist talsverður kaupþrýstingur á bæði ríkisbréf og íbúðabréf og lækkaði krafa bréfanna töluvert strax í morgunsárið.
„Þrátt fyrir að lækkunarskref Seðlabankans hafi verið nokkuð umfram það sem margir væntu á markaðinum skýrir sá munur augljóslega ekki að öllu leyti þennan kaupþrýsting heldur kemur umræðan um höftin augljóslega einnig mikið hér við sögu en nú bendir allt til þess að þeim verði ekki aflétt fyrr en í fyrsta lagi í mars á næsta ári.
Lögin um gjaldeyrishöftin renna út í lok ágúst á næsta ári og ef marka má orð Már Guðmundssonar Seðlabankastjóra þá verður framlenging á þeim. Er því ljóst að svigrúm peningastefnunefndar er mun meiri fyrir vaxtalækkun," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.



















