Veltan á fasteignamarkaði 7,9 milljarðar
Alls var 296 kaupsamningum um fasteignir þinglýst við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október. Er þetta heldur færri samningar en í september en sá mánuður var veltumesti á fasteignamarkaði frá því í mars 2008.
Heildarvelta nam 7,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning í október var 26,7 milljónir króna.
Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 2,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir hálfum milljarði króna.
Þegar október 2010 er borinn saman við september 2010 fækkar kaupsamningum um 14,7% og velta minnkar um 19,4%. Í september 2010 var þinglýst 347 kaupsamningum, velta nam 9,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 28,3 milljónir króna.
36 makaskiptasamningar
Þegar október 2010 er borinn saman við október 2009 fjölgar kaupsamningum um 39,6% og velta eykst um 29,9%. Í október 2009 var þinglýst 212 kaupsamningum, velta nam 6,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 28,7 milljónir króna.
Makaskiptasamningar voru 36 í október 2010 eða 12,7% af öllum samningum. Í september 2010 voru makaskiptasamningar 69 eða 20,8% af öllum samningum. Í október 2009 voru makaskiptasamningar 55 eða 28,8% af öllum samningum.
Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði, samkvæmt frétt á vef Þjóðskrár.
29 fasteignir seldar á Akureyri
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í október 2010 var 29. Þar af voru 17 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 672 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,2 milljónir króna.
Á sama tíma var 13 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eign í fjölbýli, 8 samningar um eignir í sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 476 milljónir króna og meðalupphæð á samning 36,6 milljónir króna.
Á sama tíma var 4 samningum þinglýst á Akranesi. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 1 samningur um eign í sérbýli. Heildarveltan var 71 milljón króna og meðalupphæð á samning 17,8 milljónir króna.
Á sama tíma var 12 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 4 samningar um eignir í sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 187 milljónir króna og meðalupphæð á samning 15,5 milljónir króna



















