Viðskipti
| AFP
| 4.11.2010
| 21:04
Hlutabréfavísitölur hærri en fyrir hrun
Hlutabréf hækkuðu í verði í kauphöllinni á Wall Street í kvöld og er Dow Jones hlutabréfavísitalan nú orðin hærri en hún var í september 2008 þegar bankinn Lehman Brothers varð gjaldþrota. Það gjaldþrot er talið marka upphaf fjármálakreppunnar.
Hlutabréf hafa hækkað beggja vegna Atlantshafsins frá því stjórn bandaríska seðlabankans tilkynnti í gær að bankinn muni kaupa ríkisskuldabréf fyrir 600 milljarða dala á næstu mánuðum til að tryggja efnahagsbata í bandaríska hagkerfinu.
Dow Jones vísitalan hækkaði um 1,96% og er 11.434 stig. Svo há hefur hlutabréfavísitalan ekki verið frá því í september 2008 eins og áður sagði. Nasdaq vísitalan hækkaði um 1,46% og er 2577 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















