Tap hjá BankNordik
Tap að fjárhæð 93 milljóna danskra króna, rúmlega 1,9 milljarða íslenskra króna, var á rekstri færeyska bankans BankNordik, sem áður hét Færeyjabanki, á þriðja fjórðungi ársins.
Hagnaður af reglulegri starfsemi var 364 milljónir danskra króna fyrir skatta, samanborið við 146 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Aukinn hagnaður stafaði að mestu af sölu bankans á Bakkafrost Holding fyrr á þessu ári.
Á móti jukust afskriftir mikið eða um 150 milljónir króna. Bankinn segir að ástæðan sé einkum sú, að verðgildi veða í nokkrum fyrirtækjum sem eru í gjaldþrotameðferð, hafi minnkað en lánasafn bankans sé traust. Eiginfjárhlutfall BankNordik er 17,2%.
Janus Petersen, forstjóri BankNordik Group, segir í tilkynningu að ekki hafi verið búist við að tap yrði á rekstrinum á þrjðja ársfjórðungi. Hins vegar sé staða bankans traust og hann stefni áfram á vöxt á norrænum bankamarkaði.



















