Viðskipti
| AFP
| 5.11.2010
| 7:10
Góð afkoma Toyota
Hagnaður japanska bílaframleiðandans Toyota Motor nam 289,16 milljörðum jena, 390 milljörðum króna, á fyrri hluta rekstrarársins. Á sama tímabili í fyrra nam tap félagsins tæpum 56 milljörðum jena.
Toyota, sem er stærsti bílaframleiðandi í heimi, hefur hækkað spá sína um afkomu ársins í 350 milljarða jena hagnað en fyrri spá hljóðaði upp á 340 milljarða jena. Gerist þetta þrátt fyrir að félagið, líkt og önnur japönsk útflutningsfyrirtæki, berjist við hátt gengi jensins gagnvart helstu myntum, svo sem Bandaríkjadal og evru.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















