Viðskipti
| Morgunblaðið
| 5.11.2010
| 5:30
| Uppfært
5:45
Skuldabréfaverð á sama stað og í ágústmánuði
Verð á skuldabréfum ríkisins og Íbúðalánasjóðs er það sama og í ágúst, þrátt fyrir að stýrivextir hafi lækkað um 2,5 prósentustig í millitíðinni.
Að öðru óbreyttu ætti skuldabréfaverð að hækka við lækkun stýrivaxta. Virðast fjárfestar enn vera hvekktir eftir hrunið í september.
Teikn eru þó á lofti um að þeir séu að jafna sig, en velta á markaði síðustu tvo daga nam um 56 milljörðum og hækkaði skuldabréfaverð nokkuð, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















