48 milljarða króna halli á Eik
Halli á rekstri færeyska bankanum Eik nam 2,3 milljörðum danskra króna, nærri 48 milljörðum íslenskra króna, á fyrstu 9 mánuðum ársins, samkvæmt bráðabirgðsauppgjöri, sem lagt hefur verið fram.
Danski tryggingasjóðurinn Finansiel Stabilitet yfirtók færeyska bankann í septemberlok þegar Eik gat ekki uppfyllt kröfur um um að auka eigið fé bankans. Rann bankinn inn í nýtt dótturfélag Finansiel Stabilitet, sem nefnist Eik Banki Føroya P/F. Það félag lagði í dag fram bráðabirgðauppgjörið en stjórn bankans hefur ekki staðfest það.
Fram kemur í tilkynningu frá Eik banka, að stjórn bankans muni óska eftir því við Nasdaq OMX að bréf bankans verði afskráð.
Eik Banki lenti í alvarlegum fjárhagsvanda eftir að fjármálakreppan skall á og reyndust
fjárfestingar bankans á svokölluðum pantmarkaði í Danmörku honum
þungur baggi. Bankinn keypti töluvert af veðskuldabréfum, meðal annars á
verslanamiðstöðvar og annað atvinnuhúsnæði og tapaði umtalsverðum
fjárhæðum á þeim viðskiptum.



















