Viðskipti
| mbl
| 9.11.2010
| 12:41
Farþegum Icelandair fjölgar
Icelandair flutti 129.975 farþega í október sem er 27% aukning frá sama mánuði í fyrra. Fyrstu 10 mánuði ársins hefur félagið flutt 1.296.067 farþega sem er 14% aukning frá sama tímabili á síðasta ári.
Flugfélag Íslands flutti 30.518 farþega í október sem er 7% aukning. Farþegum félagsins hefur hins vegar fækkað um 7% á árinu en alls hefur félagið flutt 291.622 farþega á fyrstu tíu mánuðum ársins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















