Flugfélög sektuð fyrir verðsamráð
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sektað 11 flugfélög um samtals 800 milljónir evra, jafnvirði 124 milljarða króna, fyrir ólöglegt verðsamráð í fraktflutningum. Meðal flugfélaganna eru British Airways, Air France-KLM og SAS.
Joaquín Almunia, samkeppnismálastjóri Evrópusambandsins, sagði að það væri ömurlegt að svo mörg stór flugfélög hefðu samræmt verðlagningu sína og skaðað þannig evrópsk fyrirtæki og neytendur.
Air France-KLM þarf að greiða hæstu sektina, 310 milljónir evra. Þar af greiðir Air France 183 milljónir og KLM Martinair 127 milljónir. British Airways var sektað um 104 milljónir, SAS um 70,2 milljónir evra og Cargolux um 79,9 milljónir evra.
Einnig voru Singapore Airlines Cathay, Japan Airlines, Air Canada og LAN Chile sektuð. Lufthansa og Air Lines, svissneskt dótturfélag þess, sluppu við sekt þar sem þau veittu ESB upplýsingar um verðsamráðið.
Að sögn framkvæmdastjórnar ESB samræmdu flugfélögin verðlagningu sína á sex ára tímabili, frá desember 1999 til febrúar 2006.



















