Viðskipti
| AFP
| 9.11.2010
| 15:23
Lloyds boðar frekari uppsagnir
Breski bankinn Lloyds þarf að segja upp 420 starfsmönnum til viðbótar við þá 22.500 starfsmenn sem hefur verið sagt upp frá því í fyrra. Alls starfa um eitt hundrað þúsund manns hjá bankasamsteypunni nú. Breska ríkið á 41% hlut í Lloyds eftir að hafa komið bankanum til bjargar.
Í síðasta mánuði var tilkynnt um uppsagnir 4.500 hjá Lloyds, þar af 1.750 sem störfuðu á vegum bankans utan Bretlands.
Antonio Horta-Osorio hefur verið ráðinn forstjóri Lloyds og tekur hann við starfinu af Eric Daniels. Horta-Osorio kemur til starfa hjá Lloyds um áramótin en hann starfar nú fyrir spænska bankann Santander.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















