Viðskipti
| mbl
| 9.11.2010
| 15:08
Verð hlutabréfa SAS hækkar þrátt fyrir sekt
Reuters
Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa hins vegar ekki birt úrskurð sinn um sektirnar og samkvæmt frétt á vef Berlingske Tidende hefur SAS ekki fengið upplýsingar um sektina frá ESB.
Í Le Monde kemur fram að alls þurfi félögin 24 sem eiga yfir höfði sér að greiða sekt vegna ólöglegs verðsamráðs að greiða 798,8 milljónir evra, 123,4 milljarða króna, í sekt.
Samkvæmt fréttinni þarf Air France-KLM að greiða 339,5 milljónir evra og British Airways 104 milljónir evra.
SAS var árið 2008 dæmt að greiða 247 milljónir danskra króna í sekt fyrir sama mál í Bandaríkjunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















