Viðskipti
| AFP
| 10.11.2010
| 7:06
Dregur úr tapi Euro Disney
Dregið hefur úr tapi franska skemmtigarðarins Euro Disney og nam það 39,9 milljónum evra, 6,1 milljarði króna, á rekstrarárinu sem lauk í lok september. Er það 28% minna tap heldur en á rekstrarárinu á undan.
Sala í Euro Disney garðinum jókst um 3,7% og eru tekjur ársins 1,27 milljarðar evra. Hins vegar fækkaði gestum um 2,6% á milli ára en alls sóttu 15 milljón gestir skemmtigarðinn heim á síðasta rekstrarári. Þrátt fyrir það þá jókst eyðsla gestanna í garðinum á milli ára.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















