Viðskipti
| AFP
| 10.11.2010
| 6:49
Hráolíuverð lækkar en dalur hækkar
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað í dag í rafrænum viðskiptum í Asíu vegna hækkunar á gengi Bandaríkjadals. Öll hráolíuviðskipti fara fram í Bandaríkjadölum og því skiptir gengi hans miklu fyrir verð á hráolíu.
Í New York hefur verð á hráolíu til afhendingar í desember lækkað um 23 sent og er 86,49 dalir tunnan en í Lundúnum hefur verð á Brent Norðursjávarolíu lækkað um 33 sent og er 88 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















