Milljarðatap hjá SAS
HO
Norræna flugfélagið SAS tapaði rúmlega 1 milljarði sænskra króna, 16,6 milljörðum íslenskra króna, fyrir skatta á þriðja ársfjórðungi. Gengi bréfa SAS lækkaði um 7% í upphafi viðskipta í kauphöllinni í Stokkhólmi í morgun.
Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 387 milljónum sænskra króna en óreglulegir kostnaðarliðir vega þungt, einkum þó rúmlega 70 milljóna evra sekt, sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gert SAS að greiða fyrir aðild að ólöglegu verðsamráði flugfélaga.
Stjórnendur SAS lýstu því yfir í gærkvöldi, að þeir myndu áfrýja niðurstöðu ESB en bókfæra sektina engu að síður sem útgjöld á þriðja ársfjórðungi.
Að auki hefur SAS bókfært 218 milljóna sænskra króna bætur, sem félaginu var gert að greiða norska flugfélaginu Norwegian. Þá hefur SAS náð sátt við bandarísk stjórnvöld um að greiða 104 milljónir sænskra króna í sekt fyrir samkeppnislagabrot sem félagið SAS Cargo er talið hafa framið.



















