Viðskipti
| AFP
| 10.11.2010
| 8:35
Viðsnúningur hjá Pioneer
Japanska raftækjafyrirtækið Pioneer var rekið með hagnaði á þriðja ársfjórðungi en í fyrra var tap á rekstrinum á sama tímabili. Skýrist bætt afkoma af aukinni sölu og hagræðingu í rekstri en á móti kemur að sterkt jen hefur gert félaginu lífið leitt líkt og öðrum japönskum útflutningsfyrirtækjum.
Pioneer, sem er hætt að framleiða sjónvarpstæki, sagði upp fjölda starfsmanna og fékk fjárhagsaðstoð frá japanska bílaframleiðandanum Honda eftir efnahagshrundið. Hagnaður félagsins nam nú rúmum sjö milljörðum jena en á sama ársfjórðungi í fyrra tapaði félagið 36,76 milljörðum jena.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















