Viðskipti
| mbl
| 11.11.2010
| 15:03
Endurfjármögnun lýkur ekki í ár
Lán BNT hf og Umtaks fasteignafélags ehf eru fallin í gjalddaga. Unnið er áfram í samvinnu við viðskiptabanka félaganna að endurfjármögnun og endurskipulagningu efnahags samstæðunnar.
Í upphafi var stefnt að því að vinna við endurfjármögnun og endurskipulagningu myndi ljúka á árinu 2010, nú er ljóst að vinnan mun taka lengri tíma og ekki klárast fyrr en á fyrri hluta næsta árs, segir í tilkynningu frá N1 til Kauphallarinnar.
BNT-samstæðan, sem á N1 hf. og fasteignafélagið Umtak, skuldar að minnsta kosti um 60 milljarða króna, samkvæmt síðustu birtu efnahagsreikningum félaganna. Þetta kom fram í Viðskiptablaðinu í síðasta mánuði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















