Söluréttur á 7,5% hlutafjár
Svenn Dam, fyrrverandi stjórnarformaður Nyhedsavisen, sem var í eigu 365 Media Scandinavia, keypti 7,5% hlutafjár í fyrirtækinu á eina danska krónu á hlut skömmu eftir að fyrirtækið var stofnað á árinu 2006.
Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi forstjóri Dagsbrúnar á Íslandi, gerði síðan samning við Dam um að hann gæti selt hlutina á 45 danskar krónur á hlut í nokkrum skömmtum á árunum 2009-11.
Þetta kom fram í aðalmeðferð máls Dam á hendur þrotabúi Íslenskrar afþreyingar í gær. Þórdís Sigurðardóttir, fyrrverandi starfsmaður Dagsbrúnar og Stoða, bar vitni fyrir dómnum. Að sögn Þórdísar var stjórn Dagsbrúnar meðvituð um kaupréttarsamningana. Hins vegar er hvergi minnst á þá í fundargerðum stjórnarinnar. Skiptastjóri þrotabús Íslenskrar afþreyingar heldur því jafnframt fram að Gunnar Smári hafi ekki haft umboð til að skuldbinda 365 Media Scandinavia með svo verulegum hætti, að því er fram kemur í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.



















