Fiskafli eykst milli ára
mbl.is
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum októbermánuði nam alls 83.261 tonnum í október samanborið við 67.023 tonn í sama mánuði í fyrra. Metinn á föstu verði var aflinn var 4,1% meiri en í október 2009, að sögn Hagstofunnar. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 8,6% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.
Botnfiskafli dróst saman um tæp 1400 tonn frá október 2009 og nam um 38.000 tonnum. Þar af nam þorskaflinn tæpum 17.000 tonnum, sem er aukning um rúm 900 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam rúmum 4500 tonnum, sem er um 1800 tonnum minni afli en í október 2009. Um 4800 tonn veiddust af ufsa, sem er um 1000 tonnum meiri afli en í október 2009. Karfaaflinn dróst saman um tæp 400 tonn og nam um 6400 tonnum. Nær sama magn var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann rúmum 5300 tonnum.
Afli uppsjávartegunda nam tæpum 43.00 tonnum, sem er um 17.200 tonnum meiri afli en í október 2009. Var það líkt og árið áður nær eingöngu síld.
Flatfiskaflinn var rúm 1600 tonn í október 2010 samanborið við tæp 1400 tonn árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn nam 711 tonnum og jókst um 167 tonn frá fyrra ári.



















