Viðskipti
| AFP
| 15.11.2010
| 21:33
Litlar breytingar á Wall Street
Dow Jones hlutabréfavísitalan var sú eina sem hækkaði á Wall Street í kvöld en fyrr í dag var tilkynnt um stóraukna smásölu í Bandaríkjunum í október. Eitthvað sem gladdi fjárfesta fyrst á eftir en svo dró úr hækkunum og endaði S&P 500 vísitalan með að lækkað um 0,12%.
Dow Jones hækkaði um 0,08% og er 11.201,97 stig. Nasdaq lækkaði um 0,17%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















